Dans. Tónlist. Menning. Samfélag.
Sveiflustöðin er dansskóli sem sérhæfir sig í sveifludönsum sem dansaðir eru við iðandi djasstóna í anda þriðja og fjórða áratugarinns. Hér má nefna dansa á borð við lindy hop, charleston og balboa en einnig boogie woogie og solo jazz auk annarra dansstíla.
Við bjóðum upp á fjölbreytt og metnaðarfull námskeið sem henta bæði byrjendum sem og reyndari dönsurum.
Námskeið í vor
Lindy Hop 1b grunnnámskeið
Grunnnámskeið í lindy hop þar sem áhersla er lögð á að dansa eftir 8 slaga takti. Engin fyrri dansreynsla er nauðsynleg fyrir þetta námskeið.
Námskeiðið hefst 7. apríl 2024
Lindy Hop 2a framhaldsnámskeið
Framhaldsnámskeið í Lindy Hop þar sem farið verður í tæknilegri atriði dansins og byggt ofan á atriði sem sem kennd eru í grunnnámskeiðunum. Ný spor verða kennd sem mun auka fjölbreytni í dansinum. Ljúka þarf bæði Lindy Hop 1a og 1b áður en farið er í framhaldsnámskeið.
Námskeiðið hefst 7. apríl 2024
Solo Jazz grunnnámskeið
Í þessu grunnnámskeiði munu nemendur læra solo jazz spor, kynnast því hvernig jazz tónlist virkar og öðlast skilning á hvernig hægt er að bæta við sporunum í dansorðaforðann sinn. Engin fyrri dansreynsla er nauðsynleg fyrir þetta námskeið.
Námskeiðið hefst 12. maí 2024
Lindy Hop 2b framhaldsnámskeið
Framhaldsnámskeið í Lindy Hop þar sem farið fókusað verður á snúninga, fyrir bæði leiðendur og fylgjendur. Ljúka þarf bæði Lindy Hop 1a og 1b áður en farið er í framhaldsnámskeið.
Námskeiðið hefst 12. maí 2024
Tónlistin
Dans væri lítils virði ef ekki væri fyrir tónlistina. Sveiflustöðin hefur tekið saman fjölbreytta spilunarlista inni á Spotify þar sem finna má ljúfa sveiflutóna frá frábærum listamönnum á hinum ýmsu tímabilum.
Sýnishorn af spilunarlistum Sveiflustöðvarinnar má finna hér að neðan sem og hlekk á reikning Stöðvarinnar á Spotify.
Small Wonders ehf.
kt. 701118-0220
Ásvallagata 1, 101 Reykjavík
Tölvupóstur
sveiflustodin@gmail.com