Pop-up Charleston
Charleston kvöldnámskeið
Skyndi-tími þessa mánaðar verður Charleston, þar sem við stefnum á mjög hraða yfirferð á 1c námskeiðinu. Þetta verður einskonar kvöldnámskeið, þar sem farið verður yfir 5 vikna námskeið á einni kvöldstund, og það má búast við því að svitna vel! Tíminn hefst kl 19:30 og lýkur 22:00, með nokkrum pásum, bara eins og eitt danskvöld.
Námskeiðið er kennt í eina kvöldstund í Dans og Jóga Hjartastöðinni, Skútuvogi 13a.
Námskeiðið verðu kennt þann 16. febrúar frá klukkan 19:30 til 22:00
Verð 4.900 kr.


Ekki þarf að koma með dansfélaga.
Á námskeiðunum skiptumst við á að dansa hvert við annað. Þannig fáum við fjölbreytta dansreynslu sem hjálpar okkur að læra og ná tökum á dansinum. Þar að auki er það skemmtileg leið fyrir nemendur til þess að kynnast og þjappar hópnum saman.
Það er þó fullkomlega í lagi að koma með dansfélaga og dansa einungis við hann eða hana á námskeiðunum.
Skráning
Small Wonders ehf.
kt. 701118-0220
Ásvallagata 1, 101 Reykjavík
Tölvupóstur
sveiflustodin@gmail.com