Description
Sveiflustöðin fer í bíó!
Við ætlum að bjóða samfélaginu okkar að koma saman og horfa á myndina Keep Punching, föstudaginn 6. mars! Þetta á sérstaklega vel við, þar sem að í þessari mynd er ein af frægari sóló jazz rútínum allra tíma, sem dönsuð er af hinum frægu Whitey’s Lindy Hoppers. Nemendur okkar í Big Apple rútínunni fengu fyrsta val á myndinni, og væri gaman að sjá sem flesta mæta með þeim og eiga góða kvöldstund saman með spjalli og kósý stund í einkabíósal.
Bíósalurinn er staðsettur á veitingastaðnum Lóla, að Tryggvagötu 11.
kl 19:30 – Salurinn opnar og fólk getur keypt sér drykk á barnum og tekið með inn í sal eða spjallað saman frammi.
kl 20:00 – Sýning á Keep Punching hefst!
kl 21:30 – Sýningu lýkur og fjörið færist á næsta stað fyrir þá sem vilja!
Það eru aðeins 28 sæti í boði, svo að fyrstir koma, fyrstir fá!

