Dans. Tónlist. Menning. Samfélag.
Sveiflustöðin er dansskóli sem sérhæfir sig í sveifludönsum sem dansaðir eru við iðandi djasstóna í anda þriðja og fjórða áratugarinns. Hér má nefna dansa á borð við lindy hop, charleston og balboa en einnig boogie woogie og solo jazz auk annarra dansstíla.
Við bjóðum upp á fjölbreytt og metnaðarfull námskeið sem henta bæði byrjendum sem og reyndari dönsurum.
Námskeið í sumar
Sumarnámskeið
Við kynnum ný sumarnámskeið fyrir byrjendur sem hefst núna í júní, þar sem hægt verður að taka byrjendanámskeiðin okkar á meiri hraða, þar sem kennt verður tvisvar í viku, á sunnudögum og þriðjudögum. Hvert námskeið er aðeins tvær vikur og er frábær leið til að læra Lindy Hop í hvelli!
Námskeiðin verða kennd á eftirfarandi dögum:
– Lindy Hop 1 hefst 7. júní og stendur til 16. júní.
– Lindy Hop 2 hefst 21. júní og stendur til 30. júní.
– Lindy Hop 3 hefst 23. ágúst og stendur til 1. september.
Verð fyrir hvert námskeið er 16.900 kr.
15% afsláttur reiknast af körfunni ef tvö námskeið eru keypt saman í einu og 20% reiknast af körfunni ef öll þrjú námskeiðin eru keypt saman í einu.
Staðsetning: The Dance Space Reykjavík, Höfðabakka 3, á annarri hæð
Tónlistin
Dans væri lítils virði ef ekki væri fyrir tónlistina. Sveiflustöðin hefur tekið saman fjölbreytta spilunarlista inni á Spotify þar sem finna má ljúfa sveiflutóna frá frábærum listamönnum á hinum ýmsu tímabilum.
Sýnishorn af spilunarlistum Sveiflustöðvarinnar má finna hér að neðan sem og hlekk á reikning Stöðvarinnar á Spotify.
Small Wonders ehf.
kt. 701118-0220
Tölvupóstur
sveiflustodin@gmail.com