Charleston

Grunnnámskeið í charleston

Farið verður yfir grunnspor og grunnhreyfingar í charleston með það að markmiði að nemendur fái tilfinningu fyrir tónlistinni og hreyfingunni í dansinum. Lögð er áhersla á að hafa gaman af dansinum og tónlistinni.

Námskeiðið er kennt í fimm 75 mínútna tímum í Dans og Jóga Hjartastöðinni, Skútuvogi 13a.

Námskeið hefst 21. janúar klukkan 19:30

Verð 16.900 kr. 

 

Ekki þarf að koma með dansfélaga.

Á námskeiðunum skiptumst við á að dansa hvert við annað. Þannig fáum við fjölbreytta dansreynslu sem hjálpar okkur að læra og ná tökum á dansinum. Þar að auki er það skemmtileg leið fyrir nemendur til þess að kynnast og þjappar hópnum saman.

Það er þó fullkomlega í lagi að koma með dansfélaga og dansa einungis við hann eða hana á námskeiðunum.

 

Skráning

Small Wonders ehf.

kt. 701118-0220

Ásvallagata 1, 101 Reykjavík

 

Tölvupóstur

sveiflustodin@gmail.com

Hafa samband